Saturday, December 14, 2013


Í tímabilaverkefninu þar sem taka átti greiðslur frá einhverju & útfæra á sinn hátt notaði ég skemmtilega verkefnið mitt frá því í fyrra. Þá fékk ég að greiða fyrir Nemendaóperu í Söngskóla Sigurðar Demetz - 17 einstaklingar & verkin sem tekin voru: La Sonnambule & I Puritani - Óperur eftir Bellini -- ég útfærði greiðslurnar á náttúrulegan hátt & sem látlausastan því það var falast eftir því.

Áður fyrr voru miklar krullur, liðir og mikið hár & mikið lagt upp úr greiðslunum.

Þetta var því krefjandi en jafnframt mjög skemmtilegt. Lokaútkoman - séð á sviði á frumsýningarkvöldinu
Búið að móta undirlagið úr Stálvírnum fyrir gifsun ;)
Hér er ég búin að hanna grímumótið og á bara eftir að gifsa -- notaði stálvír til að móta g-lykilinn og f-lykilinn.
Áttaði mig á því að gríman túlkaði sjálfa mig og minn karakter þegar ég var komin af stað.





Ég heiti Laufey og er í ITH 3 - Hér kemur smá innskot um grímugerðina sem við gerðum í þessum áfanga.
Þetta er hugmyndin komin á blað.
1 Uppkast af grímunni

Thursday, May 16, 2013

Moodboard 1

Moodboard 2

Moodboard 3

partytime

ég frétti að það væri erfitt að finna Pinterestið mitt svo hér kemur það:
http://pinterest.com/emilialoa/

endilega eltið mig þar :)

kv. Emilía

ps. Ég er að reyna að finna út úr því hvernig ég get sent myndir af moodboardum í Polyvore, hingað inn :)

comfy cool

Monday, May 13, 2013

Áhugaverðir linkar og síður:


http://fashion-inspiration.tumblr.comhttp://convoy.tumblr.comhttp://stylicity.tumblr.com

http://www.thesartorialist.com
http://lookbook.nu


http://mens-fashion-inspiration.tumblr.com


bækur:
- Masters of Fashion Illustration - David Downton
- Fashion Illustration: Inspiration and Technique - Anna Kiper
  + myndband með myndum ur bókinni: http://www.youtube.com/watch?v=x-PUVZ_Zrq4
- Fashion - Dorling Kindersley


hár:
- http://joannagoddard.blogspot.com/search/label/hair

mitt pinterest:
http://pinterest.com/unasoley/

Sunday, May 12, 2013

Oscars 2013: The Academy's picks for best costume design


http://www.nydailynews.com/entertainment/tv-movies/oscar-picks-best-costume-design-gallery-1.34378

Flott síða sem gaman er að skoða, með fullt af flottum teikningum :)
Bkv. Björk.       http://www.garancedore.fr/
Var að prufa að nota svampt í teikningar með mf. útkomu ;))) gaman að reyna eitthvað nýtt ;)), td.  í  hár og kraga eða bara eitthvað skemmtilegt  ;))) mæli með að reyna svampinn  til tilbreytingar

.
Bkv. Björk Baldursd.
Hér er moodboardið fyrir lokaverkefnið.



Hér er linkurinn að pinterest hjá mér.
http://pinterest.com/sandrass/

Saturday, May 11, 2013

Mat á áfanganum ITF3A2

Mér hefur þótt alveg frábært að vera í iðnteikningu þessa önnina - almennt er teikning eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á, svo mér hefur þótt allir ITF áfangarnir skemmtilegir, en sérstaklega þessi! Mér þykir svo frábært hvernig Hrönn tekst að láta okkur finna okkar eigin leiðir, að persónulegum stíl, finna aðferðir sem henta okkur og láta okkur prufa okkur endalaust áfram... Mér þykir Hrönn hafa víkkað sjóndeildarhring minn í tískuteikningu, og almennt á hönnun/hugmyndavinnu, til muna! Virkilega margar hurðir hafa verið opnaðar finnst mér, að nýjum aðferðum og hugmyndum, vitnesku og sköpun. Mér þykir þetta alveg frábært, allt í einu að kynnast heilum nýjum heimi í þessu!
Pinterest og polyvore þótti mér mjög lærdómsríkt og nothæft að kynnast - hefði jafnvel mátt kynna okkur fyrir polyvore fyrr í áfanganum til þess að maður hefði aðeins meiri tíma til að öðlast betri færni og öryggi í að gera moodboard. Gaman hvernig moodboardið var hluti af lokaverkefninu - mér fannst mikill lærdómur í því að þurfa að tengja hugmyndirnar sínar og skapa heildar/samhangandi útlit á línunni. Miðlun á hugmyndum og samhengi.
Skemmtilegustu tímarnir þóttu mér þegar við fengum að sjá verkefnin hjá hinum nemendunum. Svo skemmtilegt að sjá hvað allir voru að gera gerólíka hluti, allir með sinn stíl og sínar aðferðir. Ekkert smá lærdómsríkt að sjá hvernig fólk notar liti, áferðir og form mismunandi.
Fyndið hvernig maður getur haldið endalaust áfram að þróa verkefnin sín.. alltaf hægt að gera betur! Mér þykir í heild samt að ég hafi náð að festa mér stíl og litunaraðferðir sem ég er mjög ánægð með sjálf og reikna með að nota mikið í framtíðinni. En ég mun samt halda áfram að tilraunast þegar færi gefst!!
Ótrúlega lærdómsríkt líka og gefandi þau skipti sem Hrönn kom til manns og skoðaði teikningarnar manns, og hafði 100 komment um hvað maður gæti prufað og gert öðruvísi - eitthvað sem maður sjálfur gat ekki séð en hún opnaði fyrir!
Allt í allt fannst mér þetta frábær áfangi, Hrönn hefur kennt mér ekkert smá mikið nýtt, sem ég mun nota áfram, veitt mér "verkfæri" sem mig vantaði og mun búa vel að áfram. Best af öllu er það hvað maður finnur hve mikinn áhuga Hrönn sjálf hefur á námsefninu, það virkar eins og enn meira íkveikja í áhuganum hjá mér - mér þykir þetta allt svo spennandi!
Takk fyrir frábæra önn, vildi óska að ég gæti tekið fullt af fleirum áfangum hjá þér Hrönn!


Tuesday, May 7, 2013

Tískublogg

Ég er nýfarin að vera inni á síðu sem heitir bloglovin..alls konar blogg sem er hægt að fylgjast með eftir hönnuði og aðra, mér finnst sérstaklega skemmtilegt að lesa blogg frá Kingdom of Style..það er hægt að "followa" á þessari síðu og ég getur fylgst með því hvað ég er búin að lesa af því sem er komið með því að klikka á mark as read, þá á ég ekki á hættu að lesa sama bloggið 2x ;) mega sniðugt sérstaklega þar sem það er ekki búinn að vera mikill tími fyrir svona auka hangs á önninni :)

Hér er linkur inná síðuna http://www.bloglovin.com/
vonandi njótiði jafn vel og ég :)

takk fyrir önnina

Moodboard með lokaverkefni