Showing posts with label Særós Mist. Show all posts
Showing posts with label Særós Mist. Show all posts

Saturday, May 11, 2013

Mat á áfanganum ITF3A2

Mér hefur þótt alveg frábært að vera í iðnteikningu þessa önnina - almennt er teikning eitthvað sem ég hef mikinn áhuga á, svo mér hefur þótt allir ITF áfangarnir skemmtilegir, en sérstaklega þessi! Mér þykir svo frábært hvernig Hrönn tekst að láta okkur finna okkar eigin leiðir, að persónulegum stíl, finna aðferðir sem henta okkur og láta okkur prufa okkur endalaust áfram... Mér þykir Hrönn hafa víkkað sjóndeildarhring minn í tískuteikningu, og almennt á hönnun/hugmyndavinnu, til muna! Virkilega margar hurðir hafa verið opnaðar finnst mér, að nýjum aðferðum og hugmyndum, vitnesku og sköpun. Mér þykir þetta alveg frábært, allt í einu að kynnast heilum nýjum heimi í þessu!
Pinterest og polyvore þótti mér mjög lærdómsríkt og nothæft að kynnast - hefði jafnvel mátt kynna okkur fyrir polyvore fyrr í áfanganum til þess að maður hefði aðeins meiri tíma til að öðlast betri færni og öryggi í að gera moodboard. Gaman hvernig moodboardið var hluti af lokaverkefninu - mér fannst mikill lærdómur í því að þurfa að tengja hugmyndirnar sínar og skapa heildar/samhangandi útlit á línunni. Miðlun á hugmyndum og samhengi.
Skemmtilegustu tímarnir þóttu mér þegar við fengum að sjá verkefnin hjá hinum nemendunum. Svo skemmtilegt að sjá hvað allir voru að gera gerólíka hluti, allir með sinn stíl og sínar aðferðir. Ekkert smá lærdómsríkt að sjá hvernig fólk notar liti, áferðir og form mismunandi.
Fyndið hvernig maður getur haldið endalaust áfram að þróa verkefnin sín.. alltaf hægt að gera betur! Mér þykir í heild samt að ég hafi náð að festa mér stíl og litunaraðferðir sem ég er mjög ánægð með sjálf og reikna með að nota mikið í framtíðinni. En ég mun samt halda áfram að tilraunast þegar færi gefst!!
Ótrúlega lærdómsríkt líka og gefandi þau skipti sem Hrönn kom til manns og skoðaði teikningarnar manns, og hafði 100 komment um hvað maður gæti prufað og gert öðruvísi - eitthvað sem maður sjálfur gat ekki séð en hún opnaði fyrir!
Allt í allt fannst mér þetta frábær áfangi, Hrönn hefur kennt mér ekkert smá mikið nýtt, sem ég mun nota áfram, veitt mér "verkfæri" sem mig vantaði og mun búa vel að áfram. Best af öllu er það hvað maður finnur hve mikinn áhuga Hrönn sjálf hefur á námsefninu, það virkar eins og enn meira íkveikja í áhuganum hjá mér - mér þykir þetta allt svo spennandi!
Takk fyrir frábæra önn, vildi óska að ég gæti tekið fullt af fleirum áfangum hjá þér Hrönn!


Thursday, May 2, 2013

Pinterest og fjórar systur


Hérna kemur linkurinn að pinterestinu mínu, mér hefur þótt þetta mjög nothæf síða! Hægt að finna mikinn innblástur þarna! Ég gat því miður ekki print screen-að.. sama hversu fast ég ýti á takkan hehe. Svo hérna kemur linkurinn
Særós Pinterest



Annars þá rakst ég líka á þetta, finnst þetta frekar skemmtilegt :)

Systur sem tóku myndir af sér á hverju ári frá 1975 - 2010

Þessar systur tóku myndir af sér gegnum árin – Sjáðu breytinguna

Saturday, March 23, 2013

Áhugaverður, danskur, ungur listamaður (Særós Mist, ITF3A2K)

Ein vinkona mín þekkir þennan strák og var að sýna mér heimasíðuna hans, hann er með nokkur vídeo þar sem maður sér hvernig hann vinnur. Hann er ekkert smá hæfileikaríkur, skapandi og skemmtilegur.. Gaman að horfa á þetta finnst mér og sjá hvernig hann gerir þetta! Sumt vinnur hann í photoshop, annað málar hann með penslum...!
Njótið :)


Hér eru myndböndin:
http://www.lukasdamgaard.dk/video/

Einnig gerir hann illustration:
http://www.lukasdamgaard.dk/illustration/