Showing posts with label Íris Sif Kristjánsdóttir. Show all posts
Showing posts with label Íris Sif Kristjánsdóttir. Show all posts

Thursday, April 26, 2012

Hugleiðingar um áfangann

Ég hef aldrei teiknað neitt áður af viti. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hlutina í kringum mig, að ná betra valdi á blýantinum og að verða öruggari með skissuvinnu. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn.

Takk fyrir önnina :)

Íris Sif Kristjánsdóttir

Mappa

hér koma nokkrar myndir úr minni möppu:












Íris Sif Kristjánsdóttir











Wednesday, February 15, 2012

Myndskreytingar og Pinterest

Illustrationmundo.com er rosalega skemmtileg síða, hér geturðu fundið listamenn allt eftir hvað höfðar mest til þín t.d leitað eftir listamönnum/illustrators sem sérhæfa sig í 50s stíl, barnabóka myndskreytingum etc. Mjög áhugaverð síða. Hér kemur mynd eftir eina þarna sem heitir Melissa Murillo aka Meyoko, mjög fallegar og heillandi teikningar eftir hana. 





hér er svo linkur Pinterest síðuna mína: Íris Sif


Sunday, February 12, 2012

Egon Schiele

Egon Schiele hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds listamönnum þó að hann að sjálfsögðu höfði ekki til allra. Hann var mjög afkastamikill miðað við að hann dó úr spænsku inflúensunni aðeins 28 ára gamall. Ótrúlegt að hugsa til þess að hans lærifaðir var Gustav Klimt, stíll þeirra er svo gríðarlega ólíkur. Læt fylgja með nokkrar myndir og link á góða síðu um Egon Schiele.







Síða um Egon Schiele

Thursday, February 9, 2012

Kynning á tímabili





Ég valdi mér Art Deco tímabilið til að fjalla um. Það hófst á 3.áratug síðustu aldar í París og því lauk þegar seinni heimsstyrjöldin skall á. Helsti tískuteiknari tímans var eflaust Erté, helstu hönnuðir voru Paul Poiret, Elsa Schiapparelli og Vionnet. Læt fylgja með nokkrar myndir frá þessu tímabili.

Erté

útfrá kynningu minni á Art Deco tímabilinu þá datt mér í hug að setja hér inn nokkrar af forsíðum tímaritsins Harper's Bazaar sem Erté teiknaði.