Showing posts with label Vorönn 2012. Show all posts
Showing posts with label Vorönn 2012. Show all posts

Tuesday, May 8, 2012

Pælingar um áfangann

Ég vildi að ég hefði ekki verið í árekstri í þessum áfanga, það var mjög slæmt. Fannst ég missa af mikilli kennslu sem mér fannst ég þurfa á að halda. Fyrir mig hefði verið betra að taka meiri æfingar í stigum, t.d. við fellingar og rykkingar.
Ég hafði ekki sérstaklega gaman af gínuverkefninu, þar er kannski um að kenna að ég komst í fáa tíma og vissi því ekki mikið hvað ég átti að vera að gera. Engu að síður ágætis áfangi og ég lærði nú alveg slatta þrátt fyrir allt. Fannst reyndar mjög óþægilegt að fá ekki fyrirmyndir, fór allt of langur (dýrmætur) tími í það að vafra um á netinu að leita að myndum sem ég vissi varla hvernig áttu að vera. Finnst allt í góðu að fá aðeins meiri mötun í fyrsta teikniáfanga ;)
Takk fyrir önnina.

Jórunn

Teikningarnar mínar








Sunday, April 29, 2012

Hugleiðingar um ITF 102


Ég hafði mikið gagn af þessum áfanga. Ég hafði aldrei lært að teikna fyrr en á þessu skólaári. Ég hef séð mikinn mun á teikningunum frá byrjun ársins og þeim sem ég geri núna. Það kemur mér í rauninni á óvart hversu mikill munurinn er.  Mér fannst áhugaverðast að læra var að nota pappírsvöndul til að skyggja myndir, það á eftir að nýtast mér mjög vel. Verkefnin í áfanganum voru góð og lærði ég mikið af þeim. En trégínuverkefnið fannst mér skemmtilegast.
Kv. Valdís Steinarsdóttir

Myndir úr möppunni minni





Thursday, April 26, 2012

Hugleiðingar um áfangann

Ég hef aldrei teiknað neitt áður af viti. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hlutina í kringum mig, að ná betra valdi á blýantinum og að verða öruggari með skissuvinnu. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn.

Takk fyrir önnina :)

Íris Sif Kristjánsdóttir

Mappa

hér koma nokkrar myndir úr minni möppu:












Íris Sif Kristjánsdóttir











Sunday, April 22, 2012

Áhugaverður linkur

 Góð vinkona benti mér á þessa síðu


Hér fást svona litir og alls kyns teikni og litadót.

Svo eru þeir með skemmtilegan link þar sem hægt er að forvitnast um nokkra listamenn sem nota litina.


Tískuteikning eftir John Jay Cabuay


Thursday, February 16, 2012

The 50's

Ég valdi ,,The 50's" vegna þess að á þeim tíma var svo kvennleg og skemmtileg tíska. Konurnar fóru úr buxunum sem fylgdi fyrri heimstyrjöldinni og undirstrikuðu kvennleika sinn. Christian Dior kom með "The New Look" og allar konur áttu að vera fyrirmyndarhúsmæður.



"The New Look" By Christian Dior

Kjóll eftir Christian Dior

"The Perfect Housewife"

Elísabet María Guðmundsdóttir