Showing posts with label Jórunn S. Gröndal. Show all posts
Showing posts with label Jórunn S. Gröndal. Show all posts

Sunday, May 5, 2013

áhugaverðar síður

Ég er ekki mikið að skoða teiknitengt efni á netinu en langar að setja inn linka á síður sem ég skoða oft

Þessari ofur amerísku-mömmu hef ég fylgst með lengi, hún er oft að sauma barnaföt og búin að gefa út einhverjar bækur um efni og eitthvað fleira
http://www.danamadeit.com/

Hér er svo íslensk-ofurmamma sem er blómaskreytir og alltaf að breyta og bæta heima hjá sér. Held að pastel-fetishið mitt hafi byrjað út frá þessari síðu
http://www.skreytumhus.is/

Þetta er vinkona mín, en hún og maðurinn hennar byggðu sér risa hús og eru að vinna í að taka eitt svæði í einu og fullvinna. Mér finnst alla vega gaman að fylgjast með því þar sem maður er ekkert alltaf í heimsókn vegna anna.
http://heimilisfruin.blogspot.com/

Svo er að það maturinn, ég er rosalega þegar kemur að matarbloggum. Mér finnst svo leiðinlegt að elda og vera í eldhúsinu, en læt mig dreyma um að það breytist einn daginn og ég muni baka og elda allt af þessum bloggum sem ég skoða. Læt link á eitt duga ;)
http://gulurraudurgraennogsalt.com/

Pinterest

Kann ekki að taka svona print screen á tölvunni minni en hér kemur vonandi slóðin mín á pinterest

http://pinterest.com/jorunngro/

Hugrenningar um áfanga

Virkilega góður áfangi. Skemmtilegur og lærdómsríkur

Ég verð að segja að ég náði þér Hrönn mikið betur í þessum áfanga en í fyrsta áfanganum. Þá hefði ég þurft meiri strúktúr og tilsögn hvernig ég ætti að gera hlutina. Var alveg að fíla það núna að fá bara nokkuð lausa tauma en alltaf góð gagnrýni og uppbygging hjá þér.

Ég er að heillast að Promarker pennunum, keypti mér þá fyrst þessa önn, þar sem ég var í 200 áfagnanum á sama tíma. Var þess vegna kannski aðeins tregari að fara í aðra liti. Svo er lyktin líka góð af þeim (óléttucravings ;)) haha.

Takk æðislega fyrir önnina og hafið það gott í sumar allar saman.

Kv, Jórunn

Tuesday, May 8, 2012

Pælingar um áfangann

Ég vildi að ég hefði ekki verið í árekstri í þessum áfanga, það var mjög slæmt. Fannst ég missa af mikilli kennslu sem mér fannst ég þurfa á að halda. Fyrir mig hefði verið betra að taka meiri æfingar í stigum, t.d. við fellingar og rykkingar.
Ég hafði ekki sérstaklega gaman af gínuverkefninu, þar er kannski um að kenna að ég komst í fáa tíma og vissi því ekki mikið hvað ég átti að vera að gera. Engu að síður ágætis áfangi og ég lærði nú alveg slatta þrátt fyrir allt. Fannst reyndar mjög óþægilegt að fá ekki fyrirmyndir, fór allt of langur (dýrmætur) tími í það að vafra um á netinu að leita að myndum sem ég vissi varla hvernig áttu að vera. Finnst allt í góðu að fá aðeins meiri mötun í fyrsta teikniáfanga ;)
Takk fyrir önnina.

Jórunn

Teikningarnar mínar








Sunday, April 22, 2012

Áhugaverður linkur

 Góð vinkona benti mér á þessa síðu


Hér fást svona litir og alls kyns teikni og litadót.

Svo eru þeir með skemmtilegan link þar sem hægt er að forvitnast um nokkra listamenn sem nota litina.


Tískuteikning eftir John Jay Cabuay