Saturday, March 3, 2012
Thursday, February 16, 2012
Tímabilaverkefni
Detail from Rouff evening dress 1895
French (Rouff) dress 1895 - silk, metal
1881-84
Ég tók ekki fyrir einungis eitt tímbil heldur fleiri en eitt tímabil en sýni aðeins myndir hér á blogginu frá frá 1881-1900. Mér finnst þeir svo fallegir og íburðarmiklir, mjóa mittið og púffuðu skrautpilsin er sérstaklega fallegt. Það er eins og kjóllinn sé í sitthvoru lagi, eins og korselett að ofan og íburðarmikið pils að neðan.
-Elísabet Rut
The 50's
Ég valdi ,,The 50's" vegna þess að á þeim tíma var svo kvennleg og skemmtileg tíska. Konurnar fóru úr buxunum sem fylgdi fyrri heimstyrjöldinni og undirstrikuðu kvennleika sinn. Christian Dior kom með "The New Look" og allar konur áttu að vera fyrirmyndarhúsmæður.
"The New Look" By Christian Dior
Kjóll eftir Christian Dior
"The Perfect Housewife"
Elísabet María Guðmundsdóttir
Wednesday, February 15, 2012
Myndskreytingar og Pinterest
Illustrationmundo.com er
rosalega skemmtileg síða, hér geturðu fundið listamenn allt eftir hvað
höfðar mest til þín t.d leitað eftir listamönnum/illustrators sem
sérhæfa sig í 50s stíl, barnabóka myndskreytingum etc. Mjög áhugaverð
síða. Hér kemur mynd eftir eina þarna sem heitir Melissa Murillo aka
Meyoko, mjög fallegar og heillandi teikningar eftir hana.
hér er svo linkur Pinterest síðuna mína: Íris Sif
Monday, February 13, 2012
Oscar de la Renta
Einn af mínum uppáhald fatahönnuðum er Oscar de la Renta. Hann byrjaði að verða þekktur um allan heim á sextugasta áratuginum. En hann er mest þekktur fyrir kjólanna sína á rauða dreglinum. Ástæðan fyrir því afhverju Oscar de la Renta er einn af mínum uppáhalds hönnuðum er vegna þess að ég elska hvað kjólarnir hans geta verið öðruvísi en samt verið fallegir og fágaðir. Hann hefur líka mjög oft kjólanna sína með stórum og vígalegum pilsum sem mætti halda að væri hans kennimerki. Hér eru nokkrar myndir og linkur af síðunni hans.
http://www.oscardelarenta.com/
Kynning á timabili


Ég valdi mér kjóla frá 1950, bæði gamla og svo sem er búið að endurvekja. Ég valdi þá til að fjalla um því mér finnst þeir svo ótrúlega flottir, þeir eru svo kvennlegir og minna mig rosalega mikið á sumarið alltaf.
Kynning á tímabili
Hér er dæmi hvernig 70's tískan hefur áhrif á nútímatískuna.
Kim Kardashian með 70's inspired hár.
Kim Kardashian í Snazzy pants.
Snazzy Pants voru mjög vinsælar.
Boho og hippastíll.
Ég valdi 70's tímabilið til að fjalla um. Ástæðan var vegna þess að mér fannst svo gaman hvað margir stílar blandast saman í eitt og hvað áhrifin á tískunni koma úr öllum áttum. Helstu áhrifavaldar voru Twiggy, hippa og boho stíll og einnig tónlistin á þeim tíma.
Hér er linkurinn að pinterest mínu
http://pinterest.com/eyrunlydia/70-s/
Sunday, February 12, 2012
Egon Schiele
Egon Schiele hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds listamönnum þó að hann að sjálfsögðu höfði ekki til allra. Hann var mjög afkastamikill miðað við að hann dó úr spænsku inflúensunni aðeins 28 ára gamall. Ótrúlegt að hugsa til þess að hans lærifaðir var Gustav Klimt, stíll þeirra er svo gríðarlega ólíkur. Læt fylgja með nokkrar myndir og link á góða síðu um Egon Schiele.
Síða um Egon Schiele
Síða um Egon Schiele
Thursday, February 9, 2012
Kynning á tímabili
Ég valdi mér Art Deco tímabilið til að fjalla um. Það hófst á 3.áratug síðustu aldar í París og því lauk þegar seinni heimsstyrjöldin skall á. Helsti tískuteiknari tímans var eflaust Erté, helstu hönnuðir voru Paul Poiret, Elsa Schiapparelli og Vionnet. Læt fylgja með nokkrar myndir frá þessu tímabili.
Erté
útfrá kynningu minni á Art Deco tímabilinu þá datt mér í hug að setja hér inn nokkrar af forsíðum tímaritsins Harper's Bazaar sem Erté teiknaði.
Subscribe to:
Posts (Atom)









































