Monday, April 29, 2013

Ég vild'ég hefði meiri tíma!

Ég hef alltaf haft mjög gaman að því að teikna og lita og hef mikið getað nýtt mér allt sem Hrönn hefur kennt mér bæði í þessum áfanga (ITF3A2K) og fyrri áfanga.  Mér finnst mjög gaman að dóla mér á Pinterest og Polyvore en vildi bara að ég hefði meiri tíma.. Bæði browsa á síðunum og einnig að teikna.  Ég hefði alveg verið til í að taka þennan áfanga fyrr í náminu, á meðan það var ekki svona brjálæðislega mikið að gera.  Því miður hefur þessi áfangi svolítið fengið að sitja á hakanum hjá mér. 
En hver veit nema ég geti teiknað meira í sumar :)
takk fyrir mig,
Emilía Lóa

Sunday, April 28, 2013


Hugrenningar um áfangann ITF3A2K
Mér fannst þessi loka áfangi í ITF  alveg meiriháttar góður og alveg frábært að tengja hann við Pinterest og Polyvore sem er alveg frábært viðbót við teikninguna og tengja þetta allt saman J Kannski svona eftir á hefði ég  vilja byrja fyrr að fikta mig áfram í Polyvore, þá hefði maður kannski náð enn betri árangri.  Þetta er búið að vera mjög fjölbreytt og skemmtilegt og þú Hrönn átt mikið hrós skilið fyrir að vera svona hvetjandi og skemmtileg, frábær áfangi að mínu mati.
Takk fyrir mig J
Björk Baldursdóttir

Sunday, April 21, 2013

Skemmtilegt myndband-hraðskissur.-Jenný Hildur Ómarsdóttir ITF3A2K

Rakst á þetta myndband frá tískuteiknaranum Yelen Ayé á netinu þegar ég var að skoða tískuteikningar frá öðru fólki. Fannst þetta mjög hjálplegt og einfalt, gott til að hita upp áður en farið að teikna í stóru á A3.

Hér er myndbandið svo:
http://www.youtube.com/watch?v=S-LIQ3uZDEk

Úr myndbandinu

Saturday, March 23, 2013

Áhugaverður, danskur, ungur listamaður (Særós Mist, ITF3A2K)

Ein vinkona mín þekkir þennan strák og var að sýna mér heimasíðuna hans, hann er með nokkur vídeo þar sem maður sér hvernig hann vinnur. Hann er ekkert smá hæfileikaríkur, skapandi og skemmtilegur.. Gaman að horfa á þetta finnst mér og sjá hvernig hann gerir þetta! Sumt vinnur hann í photoshop, annað málar hann með penslum...!
Njótið :)


Hér eru myndböndin:
http://www.lukasdamgaard.dk/video/

Einnig gerir hann illustration:
http://www.lukasdamgaard.dk/illustration/

Tuesday, March 19, 2013

Síða með litafræði

http://vefir.multimedia.is/hafdis/lit/heitt-kalt.htm


Þessi síða er með mikið í sambandi við litafræði, heit og kalt.
Mjög skemmtilegt að skoða :)


Saturday, May 12, 2012

Pælingar um áfangann

Hef alltaf langað til að vera mjög góð í að stílisera gínur og eftir þennan áfanga finnst mér ég vera orðin nokkuð góð í því. Fannst hárteikningarnar og gínuverkefnið mest skemmtilegast. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hvernig ætti að teikna eftir fyrirmyndum og sjá negatívu hliðina. Lærði einnig að nota pappírsvöndul og blender penna sem ég nota oftast núna þegar ég er að teikna. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn hjá mér eftir áfangann.

Takk fyrir önnina :)

Eyrún Lýdía Sævarsdóttir

Áhugaverð síða

http://www.m-vs-m.com/ er rosalega skemmtileg síða. Hér eru myndir eftir listamann sem er að sýna fólki hvernig hann blandar saman allskonar umhverfi eins og náttúrunni saman við tæknina í dag.



Mappa

 Hér koma myndir úr lokaverkefninu.










Tuesday, May 8, 2012

Pælingar um áfangann

Ég vildi að ég hefði ekki verið í árekstri í þessum áfanga, það var mjög slæmt. Fannst ég missa af mikilli kennslu sem mér fannst ég þurfa á að halda. Fyrir mig hefði verið betra að taka meiri æfingar í stigum, t.d. við fellingar og rykkingar.
Ég hafði ekki sérstaklega gaman af gínuverkefninu, þar er kannski um að kenna að ég komst í fáa tíma og vissi því ekki mikið hvað ég átti að vera að gera. Engu að síður ágætis áfangi og ég lærði nú alveg slatta þrátt fyrir allt. Fannst reyndar mjög óþægilegt að fá ekki fyrirmyndir, fór allt of langur (dýrmætur) tími í það að vafra um á netinu að leita að myndum sem ég vissi varla hvernig áttu að vera. Finnst allt í góðu að fá aðeins meiri mötun í fyrsta teikniáfanga ;)
Takk fyrir önnina.

Jórunn

Teikningarnar mínar








Friday, May 4, 2012

Pælingar um áfangan

Þetta var mjög skemmtilegur áfangi að mínu mati, ég lærði alveg heilan helling í honum. Ekki bara það að teikna og sjá hlutina betur heldur líka að þora að skissa bara eitthvað upp og ekki láta hvíta blaðið verða ógnandi! Einnig það að æfa sig að gera hraðskissur en ekki bara nákvæmismyndir. Mér fannst virkilega gaman að heyra sögu kennarans og sjá möppu hennar, því það tengdi þetta allt betur saman við það sem gæti komið seinna. Ánægð með kennslu á netsíðum eins og pinterest sem er flottur hugmyndabanki, ég hefði aldrei fattað að nota það sjálf ;)

Verkefni úr möppunni, Lydía Dögg

Verkefni úr möppunni, Lydía Dögg





Ég ætla bara að benda á style.com þar sem ég er ekkert rosalega dugleg að finna nýar og spennadi síður ;p


Thursday, May 3, 2012

Regína Trégína (Þórhallur)






Pælingar ITF

Pælingar Þralls

Ég hef skemmt mér konunglega í ITF.
Langar að benda á gagnlega hluti sem ég hef lært/tileinkað mér.
Fyrst ber að nefna Pinterest, ég veit ekki hvar ég væri í lífinu án Pinterest og hafði ekki hugmynd um að þessi síða væri til áður en ég heyrði um hana í tímum.
Mér hefur farið fram í teikningu andlits. Svo finnst mér voða skemmtilegt að leita að og safna áferðum. Hefði aldrei dottið til hugar að nota eldavélahellu í tískuteikningu annars. Þrýstilínur í hári, vörum og augum er snilld, hef átt í erfiðleikum með þessa hluti. Skissurnar í byrjun áfangans voru svo leiðinlegar að ég dó næstum því, en ég býst við því að allur grunnur er leiðinlegur. (Í vinnunni hjá mér byrja allir á því að vaska upp t.d.)
Hefði viljað læra líka að stílísera menn. Því menn eru líka fab.

Takk fyrir mig
                        Þrallur  (Þórhallur Hafþórsson)

Gínuverkefni







Kynning