Saturday, May 4, 2013

Smá auka, Video um þæðingar - Jóhanna Eva


Veit að öllum finnst gaman að þræða ;-) 

 Hér er video sem ég fann á youtube sem sýnir fínar aðferðir hvernig á að þræða



Kveðja Jóhanna Eva Gunnarsdóttir

Smá færsla, mitt blogg og fleyra - Jóhanna Eva

Smá sem ég fann á netinu..


Floyd Grey  #illustrationFloyd Grey #illustration 

Sama myndin en samt ekki eins, gaman að sjá mismuninn á myndunum. Maður þarf ekki að gera allt öðrvísi en maður hefur verið að gera þ.a.s. ef maður er sáttur, pínu lítil breyting er nóg eða bara engin.


******************************************************************************************************

Svo langar mig að deila með ykkur mínu bloggi, ég er reyndar ekki mikið búinn að vera inn á því út af prófunnum en þið vitið hvernig það er.. en hér er bloggið mitt :-)

..og svo eitt að lokum, hér er mín Pinterest síða ef þið viljið skoða.


kveðja Jóhanna Eva Gunnarsdóttir


Polyvore - Sandra

Hér er linkur á Polyvore-plássið mitt:

http://sandragests.polyvore.com/

Ég vann lokaverkefnið aðallega út frá svart/hvíta borðinu með krukkunni,  og untitled #6.

Kv.
Sandra Gests.

 

Takk fyrir önnina!

HÆ!

Mig langar að þakka þér Hrönn kærlega fyrir mjög skemmtilega önn í ITF. Mér finnst ég hafa lært heilan helling af þér, bæði af gagnrýninni sem og uppbyggingunni sem þú varst óspör á, en fyrir mitt leiti var mikil þörf fyrir smá spark í rassinn, og frelsi í að fá að gera það sem mann langar, en ekki eitthvað fyrirfram ákveðið sem kannski inspererar ekki eins. Mér finnst ég rétt vera að komast í gírinn í lok annar, og hefði viljað meiri tíma til að gera meira í möppuna góðu :) Það er svo gaman að sjá framfarir, og koma sjálfri sér á óvart.

Verð að vera sammála stelpunum, ég hefði verið til í lotu með þér þar sem við hefðum farið enn dýpra í meira efni - þú ert ofboðslega góður kennari og ég held að við myndum allar græða mikið á að læra meira af þér.

Ég veit að áfanginn olli þér stressi í byrjun annar, en þú skilaðir honum mjög vel frá þér - allavega fyrir mína parta!

Takk fyrir önnina og gleðilegt sumar til ykkar allra! :)

Sandra Gests.

Friday, May 3, 2013

WE HEART IT : BIRTA BLÍN



Þar sem við lærðum mikið á Pinterest og Polyvore í þessum áfanga langaði mig að sýna ykkur síðu sem ég hef sjálf notað mikið: 
Ef þið hundsið Justin Bieber myndirnar þarna inná þá getur þessi síða verið mjög skemmtileg og gefið manni innblástur.

♡

THREADBANGER : BIRTA BLÍN

 
 Threadbanger: er youtube síða sem tengist saumaskap fólk sendir þeim myndbönd og þau pósta þau. Þó að við kunnum þetta allt svoo mikið betur :P þá er samt gaman að skoða þessi myndbönd og fá frumlegar hugmyndir ;)

THINK OUTSIDE THE BOX : BIRTA BLÍN


Ég er mjög ánægð með árangurinn sem ég hef náð í þessum áfanga, með því að vinna sjálfstætt. Mér finnst mjög góð breyting að hafa fengið að teikna það sem við vildum og okkar hugmyndir, heldur en að teikna eftir kennaranum á töflunni. Með því þróum við okkur sjálf og finnum okkar stíl í staðinn fyrir að enda sem spegilmyndir kennararns. Mér fannst mjög skemmtilegt að sjá hvað allir voru að gera og hversu fjölbreytt það var.

Við gætum ekki hafa fengið betri kennara, Takk fyrir frábæra tíma Hrönn :)

Gleðilegt Sumar allir,
Birta Blín.

Thursday, May 2, 2013

Pinterest og fjórar systur


Hérna kemur linkurinn að pinterestinu mínu, mér hefur þótt þetta mjög nothæf síða! Hægt að finna mikinn innblástur þarna! Ég gat því miður ekki print screen-að.. sama hversu fast ég ýti á takkan hehe. Svo hérna kemur linkurinn
Særós Pinterest



Annars þá rakst ég líka á þetta, finnst þetta frekar skemmtilegt :)

Systur sem tóku myndir af sér á hverju ári frá 1975 - 2010

Þessar systur tóku myndir af sér gegnum árin – Sjáðu breytinguna

ITF3A2K

Ég er frekar ánægð með þennan áfanga.
Við erum búnar að fá að prófa okkur sjálfar áfram, prófa nýja hluti, liti, áferðir og þróa okkar eigin stíl.
Við erum ekki fastar í neinum kassa. Ég kann vel að meta það. Þoli ekki þegar það er verið að reyna að stinga manni í eitthvað mót sem maður passar engan veginn í.
En í vetur fannst mér fyrst gaman að teikna, ég var farin að sjá árangur hjá mér og fannst teikningarnar mínar ekkert vera eins slæmar og mér fannst alltaf áður. Ég vildi bara að ég hefði haft meiri tíma til að dúlla mér heima við að teikna og skissa og prófa litina.
Og já ég er sammála Öllu Sif, ef þetta væri í staðlotum hefði maður meiri og betri tíma til að teikna í tímunum.

Annars bara takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar :)

Sigríður Theodóra 

Myndband - Hvernig á að teikna auga.

Ég er ekki þolinmóð þegar það kemur að því að horfa á myndbönd og ég er ekki góð í að teikna augu.
Þess vegna fannst mér þetta myndband mjög gott. Stutt, laggott en kennir manni samt helling :)
http://www.youtube.com/watch?v=dT5bm6JBxcI

Pinterest

Hérna er linkurinn að Pinterest síðunni minni. http://pinterest.com/siggath/
Ég er nú ekki búin að missa mig í þessu eins og sumir. Ég hef alveg gaman að þessu en einhvern veginn ekki dottið inní þetta. Þetta er nú samt mjög sniðugt og skemmtilegt og gott að eiga svona skipulagðan gagnabanka á einum stað sem tekur ekki pláss uppí hillu.
Vonandi kemst ég bara í gírinn í sumar. :)

Wednesday, May 1, 2013

Þetta finnst mér fallegt! sólveig Rós

http://www.flickr.com/photos/samanthahahn/5296819984/in/set-72157625737649102/


Ég er mjög hrifin af svona vatnslitateikningum. :)

Sólveig Rós

Um àfangann, Sólveig Rós.

Hæ hæ, ég var að lesa innleggið frà henni Öllu og ég verð bara að fà að segja hvað èg er sammàla henni um hvað það væri gott að geta tekið þetta í lotu. Eitthvað svo hryllilega mikið stress à manni og komast ekkert alltaf alveg í teiknigírinn. Fannst ofsalega gaman að kynnast pinterest og sjà endalaust mikið af flottum og skemmtilegum teikningum þar inni, þó ég sé sjàlf engin svaka teiknari. Polyvore skildi èg ekki alveg en èg hugsa að ef èg gef mér tíma til að skoða það þegar prófin eru búin verð ég líklega àstfangin af því eins og pinterest. ;) Einnig hefði ég viljað hafa meiri flatar teikningar.

Takk fyrir önnina :)

Sólveig Rós

Eduardo Fossa

Hrikalega flottar teikningar :)





Frábært myndband sem mér fannst frábært að horfa á og hafa til hliðsjónar þegar ég var að byrja að teikna andlit. Það eru fleiri myndbönd frá Yelen Ayé á youtube sem er gaman að skoða :)

http://www.youtube.com/watch?v=GBW8tgwTr3E

-Tíminn-

Góða kvöldið Hrönn og þið hin sem sjáið þetta :)

Ef ég á að vera aaalveg hreinskilin þá er þessi tími búin að fara alveg með mig. Hrönn þú ert æði en þessi áfangi væri alveg þúsund sinnum skemmtilegri ef maður hefði fleiri tíma í sólarhringnum og gæti einbeitt sér betur að þessu.
Ég náði aldrei að koma mér almennilega í gírinn til að teikna þar sem stress og vinna á öðru "mikilvægara" þurfti að ganga fyrir.

Annars var gaman að kynnast pinterest og polyvore og er ég alveg handviss um að ég eigi eftir að nýta mér það heilmikið.

Persónulega myndi ég vilja taka svona tíma í lotum, þar sem maður sest niður og kemst í gírinn og þarf ekki að hætta um leið og maður er byrjaður.

Takk fyrir önnina
Aðalheiður Sif :)