Wednesday, February 6, 2013
Saturday, May 12, 2012
Pælingar um áfangann
Hef alltaf langað til að vera mjög góð í að stílisera gínur og eftir þennan áfanga finnst mér ég vera orðin nokkuð góð í því. Fannst hárteikningarnar og gínuverkefnið mest skemmtilegast. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hvernig ætti að teikna eftir fyrirmyndum og sjá negatívu hliðina. Lærði einnig að nota pappírsvöndul og blender penna sem ég nota oftast núna þegar ég er að teikna. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn hjá mér eftir áfangann.
Takk fyrir önnina :)
Eyrún Lýdía Sævarsdóttir
Takk fyrir önnina :)
Eyrún Lýdía Sævarsdóttir
Áhugaverð síða
http://www.m-vs-m.com/ er rosalega skemmtileg síða. Hér eru myndir eftir listamann sem er að sýna fólki hvernig hann blandar saman allskonar umhverfi eins og náttúrunni saman við tæknina í dag.
Tuesday, May 8, 2012
Pælingar um áfangann
Ég vildi að ég hefði ekki verið í árekstri í þessum áfanga, það var mjög slæmt. Fannst ég missa af mikilli kennslu sem mér fannst ég þurfa á að halda. Fyrir mig hefði verið betra að taka meiri æfingar í stigum, t.d. við fellingar og rykkingar.
Ég hafði ekki sérstaklega gaman af gínuverkefninu, þar er kannski um að kenna að ég komst í fáa tíma og vissi því ekki mikið hvað ég átti að vera að gera. Engu að síður ágætis áfangi og ég lærði nú alveg slatta þrátt fyrir allt. Fannst reyndar mjög óþægilegt að fá ekki fyrirmyndir, fór allt of langur (dýrmætur) tími í það að vafra um á netinu að leita að myndum sem ég vissi varla hvernig áttu að vera. Finnst allt í góðu að fá aðeins meiri mötun í fyrsta teikniáfanga ;)
Takk fyrir önnina.
Jórunn

Monday, May 7, 2012
Friday, May 4, 2012
Pælingar um áfangan
Þetta var mjög skemmtilegur áfangi að mínu mati, ég lærði alveg heilan helling í honum. Ekki bara það að teikna og sjá hlutina betur heldur líka að þora að skissa bara eitthvað upp og ekki láta hvíta blaðið verða ógnandi! Einnig það að æfa sig að gera hraðskissur en ekki bara nákvæmismyndir. Mér fannst virkilega gaman að heyra sögu kennarans og sjá möppu hennar, því það tengdi þetta allt betur saman við það sem gæti komið seinna. Ánægð með kennslu á netsíðum eins og pinterest sem er flottur hugmyndabanki, ég hefði aldrei fattað að nota það sjálf ;)
Thursday, May 3, 2012
Pælingar ITF
Pælingar Þralls
Ég hef skemmt mér konunglega í ITF.
Langar að benda á gagnlega hluti sem ég hef lært/tileinkað mér.
Fyrst ber að nefna Pinterest, ég veit ekki hvar ég væri í lífinu án Pinterest og hafði ekki hugmynd um að þessi síða væri til áður en ég heyrði um hana í tímum.
Mér hefur farið fram í teikningu andlits. Svo finnst mér voða skemmtilegt að leita að og safna áferðum. Hefði aldrei dottið til hugar að nota eldavélahellu í tískuteikningu annars. Þrýstilínur í hári, vörum og augum er snilld, hef átt í erfiðleikum með þessa hluti. Skissurnar í byrjun áfangans voru svo leiðinlegar að ég dó næstum því, en ég býst við því að allur grunnur er leiðinlegur. (Í vinnunni hjá mér byrja allir á því að vaska upp t.d.)
Hefði viljað læra líka að stílísera menn. Því menn eru líka fab.
Takk fyrir mig
Þrallur (Þórhallur Hafþórsson)

Sunday, April 29, 2012
Hugleiðingar um ITF 102
Ég hafði mikið gagn af þessum áfanga. Ég hafði aldrei lært
að teikna fyrr en á þessu skólaári. Ég hef séð mikinn mun á teikningunum frá
byrjun ársins og þeim sem ég geri núna. Það kemur mér í rauninni á óvart hversu
mikill munurinn er. Mér fannst
áhugaverðast að læra var að nota pappírsvöndul til að skyggja myndir, það á
eftir að nýtast mér mjög vel. Verkefnin í áfanganum voru góð og lærði ég mikið
af þeim. En trégínuverkefnið fannst mér skemmtilegast.
Kv. Valdís Steinarsdóttir
Kv. Valdís Steinarsdóttir
Thursday, April 26, 2012
Hugleiðingar um áfangann
Ég hef aldrei teiknað neitt áður af viti. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hlutina í kringum mig, að ná betra valdi á blýantinum og að verða öruggari með skissuvinnu. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn.
Takk fyrir önnina :)
Íris Sif Kristjánsdóttir
Takk fyrir önnina :)
Íris Sif Kristjánsdóttir
Subscribe to:
Posts (Atom)