Tuesday, April 30, 2013

Æfingin skapar meistarann

Ég hef lært mikið í þessum áfanga og uppgötvað tæknina sem Hrönn benti okkur á til að nota fyrir okkar verkefni, þá er ég væntalega að tala um pinterest og polyvore sem var alveg nýtt fyrir mér :) 
 Ef ég væri að halda áfram í skólanum þá hefði ég vilja vera í þessum áfanga áfram til að þróa minn stíl ennþá betur, svo er þetta líka bara svo gaman. Ég hætti örugglega ekki teikna og þróa mig áfram þó þetta sé búið, núna er ég líka komin í góðan gír til þess eftir þennan áganga.
Ég vil þakka nemendum fyrir samveruna og Hrönn fyrir góða leiðbeiningar sem hafa hjálpað mér að vinna teikningar mínar á réttan hátt.

Hér í lokin vil ég deila með ykkur vefsíðu. Ég er aðdáandi Evanu sem að gerir svo flottar og krúttlegar myndir, hún er með sinn eigin stíl.... og mikið fyrir kisur :-)  Hún notar mikið tölvuforrit í myndirnar sínar

Mynd eftir hana



Promarker

Hér er vefsíða þar sem er sýnt hvernig má nota promarker pennana


Efni

Hér eru kennslumyndbönd á youtube þar sem hún kennir að mála áferð á efnum


Ég nota Pinterest mjög mikið, fyrir hugmyndasöfnun og bara til að skoða fallega og skemmtilega hluti, ég hef líka notað það þegar ég er að vinna og afla hugmynda fyrir/með kúnna og þá nota ég secret bord.
Mér fannst frábært að tvinna Pinterest-ið inní áfangann, bæði til að fá hugmyndir og pinna þær og til að finna minn persónulega stíl sem maður sér þróast með fleiri og fleiri pinnum :)

Slóðin á Pinterest-ið mitt :)
http://pinterest.com/gudrunbjorns/boards/

Tíminn hjá Hrönn


Mér fannst tíminn hjá Hrönn mjög skemmtilegur, mikill vinnufriður og alltaf hægt að fá aðstoð.
Ég er samt sammála með Karín að það væri kannski betra ef tíminn væri tvisvar í viku og styttri.

hvernig mer fanst tíminn hjá hrönni

mér fanst þessi tími vera mjög fínn. mætti samt frekar vera tvisvar i viku í staðinn fyrir einu sinni og geðveikt langur. lærði mjög mikið af þessu.

Monday, April 29, 2013

hvernig maður teiknar hár :)

http://www.youtube.com/watch?v=J8OSyktdSlE
@labels Elín Ösp Grétarsdóttir

ITH1A2H hvernig á að teikna auga.

Frekar flottar teikningar sem þessi maður gerir.
http://www.youtube.com/watch?v=WhAQUcLj-Ts

Ég vild'ég hefði meiri tíma!

Ég hef alltaf haft mjög gaman að því að teikna og lita og hef mikið getað nýtt mér allt sem Hrönn hefur kennt mér bæði í þessum áfanga (ITF3A2K) og fyrri áfanga.  Mér finnst mjög gaman að dóla mér á Pinterest og Polyvore en vildi bara að ég hefði meiri tíma.. Bæði browsa á síðunum og einnig að teikna.  Ég hefði alveg verið til í að taka þennan áfanga fyrr í náminu, á meðan það var ekki svona brjálæðislega mikið að gera.  Því miður hefur þessi áfangi svolítið fengið að sitja á hakanum hjá mér. 
En hver veit nema ég geti teiknað meira í sumar :)
takk fyrir mig,
Emilía Lóa

Sunday, April 28, 2013


Hugrenningar um áfangann ITF3A2K
Mér fannst þessi loka áfangi í ITF  alveg meiriháttar góður og alveg frábært að tengja hann við Pinterest og Polyvore sem er alveg frábært viðbót við teikninguna og tengja þetta allt saman J Kannski svona eftir á hefði ég  vilja byrja fyrr að fikta mig áfram í Polyvore, þá hefði maður kannski náð enn betri árangri.  Þetta er búið að vera mjög fjölbreytt og skemmtilegt og þú Hrönn átt mikið hrós skilið fyrir að vera svona hvetjandi og skemmtileg, frábær áfangi að mínu mati.
Takk fyrir mig J
Björk Baldursdóttir

Sunday, April 21, 2013

Skemmtilegt myndband-hraðskissur.-Jenný Hildur Ómarsdóttir ITF3A2K

Rakst á þetta myndband frá tískuteiknaranum Yelen Ayé á netinu þegar ég var að skoða tískuteikningar frá öðru fólki. Fannst þetta mjög hjálplegt og einfalt, gott til að hita upp áður en farið að teikna í stóru á A3.

Hér er myndbandið svo:
http://www.youtube.com/watch?v=S-LIQ3uZDEk

Úr myndbandinu

Saturday, March 23, 2013

Áhugaverður, danskur, ungur listamaður (Særós Mist, ITF3A2K)

Ein vinkona mín þekkir þennan strák og var að sýna mér heimasíðuna hans, hann er með nokkur vídeo þar sem maður sér hvernig hann vinnur. Hann er ekkert smá hæfileikaríkur, skapandi og skemmtilegur.. Gaman að horfa á þetta finnst mér og sjá hvernig hann gerir þetta! Sumt vinnur hann í photoshop, annað málar hann með penslum...!
Njótið :)


Hér eru myndböndin:
http://www.lukasdamgaard.dk/video/

Einnig gerir hann illustration:
http://www.lukasdamgaard.dk/illustration/

Tuesday, March 19, 2013

Síða með litafræði

http://vefir.multimedia.is/hafdis/lit/heitt-kalt.htm


Þessi síða er með mikið í sambandi við litafræði, heit og kalt.
Mjög skemmtilegt að skoða :)


Saturday, May 12, 2012

Pælingar um áfangann

Hef alltaf langað til að vera mjög góð í að stílisera gínur og eftir þennan áfanga finnst mér ég vera orðin nokkuð góð í því. Fannst hárteikningarnar og gínuverkefnið mest skemmtilegast. Þessi áfangi kenndi mér að sjá betur hvernig ætti að teikna eftir fyrirmyndum og sjá negatívu hliðina. Lærði einnig að nota pappírsvöndul og blender penna sem ég nota oftast núna þegar ég er að teikna. Það kom mér skemmtilega á óvart að sjá árangurinn hjá mér eftir áfangann.

Takk fyrir önnina :)

Eyrún Lýdía Sævarsdóttir

Áhugaverð síða

http://www.m-vs-m.com/ er rosalega skemmtileg síða. Hér eru myndir eftir listamann sem er að sýna fólki hvernig hann blandar saman allskonar umhverfi eins og náttúrunni saman við tæknina í dag.



Mappa

 Hér koma myndir úr lokaverkefninu.










Tuesday, May 8, 2012

Pælingar um áfangann

Ég vildi að ég hefði ekki verið í árekstri í þessum áfanga, það var mjög slæmt. Fannst ég missa af mikilli kennslu sem mér fannst ég þurfa á að halda. Fyrir mig hefði verið betra að taka meiri æfingar í stigum, t.d. við fellingar og rykkingar.
Ég hafði ekki sérstaklega gaman af gínuverkefninu, þar er kannski um að kenna að ég komst í fáa tíma og vissi því ekki mikið hvað ég átti að vera að gera. Engu að síður ágætis áfangi og ég lærði nú alveg slatta þrátt fyrir allt. Fannst reyndar mjög óþægilegt að fá ekki fyrirmyndir, fór allt of langur (dýrmætur) tími í það að vafra um á netinu að leita að myndum sem ég vissi varla hvernig áttu að vera. Finnst allt í góðu að fá aðeins meiri mötun í fyrsta teikniáfanga ;)
Takk fyrir önnina.

Jórunn