Þegar við erum á Netinu sjáum við oft flottar myndir sem við viljum halda uppá eða nýta okkur í verkefni oftast hefur maður hægri smellt á myndina - gert SAVE og sett í Folder í My Pictures.
En það er annar möguleiki til og hann er að skrá sig í Pinterest og "pinna" allar myndirnar á töflu (board) hjá ykkur. Þetta er snilldarlausn og á eflaust eftir að hjálpa til að finna fleiri myndir - það er nefnilega ágæt leitarvél á Pinterest. Hér fyrir neðan sjáið þið dæmi um hvernig þetta lítur út og neðst er leiðbeiningarmyndband á YouTube um hvernig maður byrjar á Pinterest og hvernig maður notar það.
Hér er líka blogg sem þeir eru með:
http://blog.pinterest.com/
Hér er líka blogg sem þeir eru með:
http://blog.pinterest.com/
Hægt er að leita í Pinterest - hér er t.d. mynd tekin af niðurstöðu Fashion Illustration
Svona lítur forsíðan út þegar ég fór inná síðast - hún er breytileg - efst er nýjast sem hefur verið pinnað á vegginn.
Þetta er slóðin: http://pinterest.com/
Hér eru leiðbeiningar á YouTube hvernig á að nota Pinterest.
No comments:
Post a Comment