Sunday, May 5, 2013

Önnin er búin...

Tíminn flýgur áfram...

Það er búið að vera skemmtilegt að vera í iðnteikningu hjá Hrönn að læra skemmtilegar aðferðir til að teikna andlit og hár,, alltaf hef ég haft áhuga á að teikna og haft gaman að því en staðnaði á tímabili og nennti því ekki að teikna í mörg ár... aðferðirnar sem Hrönn kennir eru snilld og verkfærin sem maður notar í það hefði mig aldrei grunað..Kannski maður fari að teikna á fullu aftur hver veit...
aldeilis að allir eru hæfileikaríkir í bekknum og myndirnar svo fallegar eftir krakkana sem segjast ekki kunna neitt að teikna urðu bara brjálæðislega flottar og kom á óvart hvað maður getur gert ef maður gefur sér tíma í þetta.. Oft þurfti maður mikinn skammt af þolinmæði í að teikna myndirnar


Takk fyrir önnina Hrönn þú ert snilldar kennari hlakka til að koma í næstu áfanga hjá þér :)

Aðalheiður Jónsdóttir


No comments:

Post a Comment