Thursday, February 9, 2012
Sunday, January 15, 2012
Omar Ortiz
Þetta eru allt málverk eftir suður-ameríska lista mannin Omar Ortiz ekkert af þessu er ljósmynd. Það er ótrúlegt það sem þessi maður getur gert!
-Sunna Rós
Friday, December 9, 2011
Hugleiðingar um ITF102
Mér fannst þessi áfangi mjög skemmtilegur, gaman að fá að læra teikna loksins en
eg lærði helling á þessum áfanga, og þetta á eftir að nýtast mer vel. Mér fannst skemmtilegast að læra að
teikna stiliseruðu gínuna, og leika mer að breyta henni svona, og þegar eg lærði að teikna andlitið og lærði að skyggja
eftir því. Ég lærði mest á þvi að þegar kennarinn gekk á milli og sýndi okkur og leyfði okkur að sjá hjá hverjum og einum.
Áslaug Reimars.
Hugleiðingar um ITF102
Hugleiðingar um ITF102
Mér fannst ég læra mikið í þessum áfanga og voru verkefnin áhugaverð. Ég verð þó að segja að mér fannst of mikið af verkefnum í áfanganum, bæði miðað við hvað við misstum mikið úr en einnig vegna þess að vorum bara einu sinni í viku. Ég hefði viljað fleiri tíma og fara aðeins hægar í efnið. Ég hef ekkert teiknað áður og mér fannst ég þurfa meiri tíma til að tileinka mér þá færni sem ætlast er til af manni í áfanganum. En mér finnst voða gaman að teikna og ætla að halda því áfram.
Takk fyrir önnina :)
Kveðja
Rannveig Alda Haraldsdóttir
Thursday, December 8, 2011
Hugleiðingar um ITF 102
Mér fannst ITF 102 vera góður áfangi en ég vildi að við hefðum haft meiri tíma saman. Til að byrja með fannst mér skrýtið að hlusta á fyrirlestra um það hvernig á að teikna en fyrirlestrarnir voru góðir og kynntu allskyns tækni sem við gátum svo prófað okkur áfram með. Mér fannst best þegar tímarnir voru blanda af báðu, þe. fyrirlestur til að byrja með og svo tími til að teikna.
Það var virkilega gott að fá komment frá kennara en stundum hefðu helst þurft að vera tveir til að hjálpa okkur, við sem sátum aftast urðum stundum útundan!
Ég, eins og margir aðrir, var sett í 102 og 202 saman (og AHS313) þannig að það var mikið um teikningu þessa önnina! Það var svolítið skrýtið að vera taka þessa áfanga saman þar sem mér vantaði í rauninni grunninn fyrir 202....þetta bjargaðist auðvitað en eftir á að hyggja finnst mér að ég hefði geta gert margt betur í 202, eitthvað sem við vorum að byggja upp í 102 tímunum.
Uppáhaldsverkefnið mitt var trégínuverkefnið, mér fannst ég læra helling af því og það var gaman að klæða gínuna upp heima og pæla svo í hvernig væri hægt að gera alvöru flíkur úr því í lokaverkefninu.
Takk fyrir önnina :)
Ýr Kára

Wednesday, December 7, 2011
Hugleiðingar um ITF 102
Mér fannst áfanginn mjög skemmtilegur og verkefnin mjög áhugaverð, en skemmtilegasta verkefnið var trégínuverkefnið. Ég lærði alveg heilan helling á önninni og komin með grunn í líkamsteikningu og stíliseringu á gínum.
Ég er alveg sammála hinum að það hefðu mátt vera oftar skil á verkefnum yfir önnina.
Takk æðislega fyrir önnina þú ert frábær kennari :)
Auður Ýr Gísladóttir
Ég er alveg sammála hinum að það hefðu mátt vera oftar skil á verkefnum yfir önnina.
Takk æðislega fyrir önnina þú ert frábær kennari :)
Auður Ýr Gísladóttir
Hugleiðingar um ITF 102
Mér fannst ég læra mjög mikið í áfanganum og hafði sérstaklega gaman af að læra að nota pappírsvöndul. Það var einnig mjög gott að læra að stílisera gínur og sjá hvernig raunverulegu módeli er breytt í tískuteikningu. Mér fannst ég læra mest þegar kennarinn gekk á milli og hjálpaði hverjum og einum en það hefðu örugglega þurft að vera tveir kennarar eða helmingi færri nemendur til þess að það hefði verið hægt eins oft og maður vildi.
Mér fanst áfanginn hvetjandi og hann vakti löngun hjá mér til að læra meira.
kv. Þórunn Jens
Mér fanst áfanginn hvetjandi og hann vakti löngun hjá mér til að læra meira.
kv. Þórunn Jens
H2011
Mér fannst áfanginn mjög fínn, lærði margt og kom sjálfri mér á óvart.
Hins vegar er ég mjög sammála þeim hér fyrir neðan. Verkefnaskil hefðu mátt vera reglulega og frekari komment á það sem við vorum að gera í tímum, en það var oft sem einhverjir fengu engann tíma með kennara, þá kannski sérstaklega þeir sem sátu aftast. Þá var einnig vont að missa mikið úr vegna veikinda.
Heilt á litið er ég þó ánægð með það sem ég lærði, og það mun eflasut nýtast vel í framtíðinni.
Takk fyrir önnina :)
Sandra Heiðars.
Hugleiðingar í Itf
Mér Fannst ég læra helling yfir önnina í áfanganum t.d. um andlitin og stíliseringu líkama og fl. Leiðinlegt að missa út tíma þarna í byrjun :)
En ég verð að vera sammála þeim fyrir neðan með að það mætti vera reglulegri skil yfir önnina, þá gætum við líka tekið þau komment sem þú skrifar á myndirnar okkar og lært af þeim og ekki gert sömu mistöl á næstu mynd.. það myndi líka minnka vinnuna fyrir okkur og Hrönn í lok annar. Mér fannst ég líka stundum ekkert vita hvað ég átti að gera í tímanum :)
Takk fyrir önnina :)
-Heiða Björg
Hugleiðingar um ITF
Mér fannst verkefnin í áfanganum að öllu jöfnu góð og komin með þá allavega smá grunn í líkamsteikningu og stíleseringu á fötum, en mér fannst trégínuverkefnið skemmtilegast.
Ég held að ég hafi lært alveg helling á önninni sem á vonandi eftir að nýtast mér, þótt að við misstum doldið mikið af önninni útaf veikindunum.
En annars finnst mér að það megi hafa reglulegri skil yfir önnina og sýna meira á töflunni í tímum hvernig við getum byrjað eða hvað væri góð aðferð að nota.
Takk fyrir önnina,
Sunna Líf.
Hugleiðingar um ITF
Mér fannst ég læra alveg slatta á þessum áfanga.
Margar teikniaðferðir sem ég hafði ekki hugmynd um. Var samt leiðinlegt hversu mikið við misstum úr vegna veikinda.
Áfanginn hefði geta verið settur betur upp. Skil á verkefnum nokkrum sinnum yfir önnina hefði verið mjög þægilegt.
Annars var þetta bara fínt yfir heildina.
-Brynjar

um áfangann
Mér fannst verkefnin í áfanganum að öllu jöfnu góð, en mér fannst trégínuverkefnið lang skemmtilegust!
Ég held að ég hafi lært helling á önninni sem á vonandi eftir að nýtast mér.
En mér fannst uppsetningin á áfanganum ekki nógu góð, hann minnti mig eiginlega á fjarnámsáfanga, þar sem maður þarf að vinna mjög sjálfstætt og skilar öllu í lok annar og gerir þar að leiðandi ekki verkefnin jafnt og þétt, mér finnst að það meigi endurskoða það og hafa reglulegri skil yfir önnina.
Takk fyrir önnina,
Ester Sig.

Thursday, November 24, 2011
Hugleiðingar nemenda í ITF102 í lok haustannar 2011
Hér eru hugleiðingar nemenda sem stunduðu nám í ITF102 haustið 2011.
Wednesday, November 23, 2011
Birdy & Me
Ekkert smá flottar myndir, gaman að sjá hvernig hún blandar dýrum inn í =)
http://www.flickr.com/photos/birdyandme/sets/72157627259002862/
http://www.flickr.com/photos/birdyandme/sets/72157627259002862/
Monday, November 14, 2011
29 Ways to Stay Creative :) - Karlotta
Mig langaði til að deila þessu vídjói með ykkur!
Mjög gott að horfa á það ef maður er hugmyndasnauður :)
Tuesday, November 8, 2011
Hæ hæ,
kv. Ýr
Langaði að deila með ykkur síðu sem ég hef notað lengi og virkar svipað og Pinterest.
Þetta tengist kannski ekki beint teikningunni en það er hægt að finna fullt af flottum fötum og "outfittum" sem væri gaman að teikna eftir.
Síðan heitir Svpply og þar getið þið búið til ykkar aðgang og byrjað að safna hlutum sem ykkur finnst áhugaverðir. Síðan er ætluð fyrir hluti sem hægt er að kaupa og í staðin fyrir "pin it" takka þá er "buy later" takki. Allt sem þið veljið í "buy later" þarf að flokka niður eftir hvaða kyni hluturinn hentar, hverskonar hlutur þetta er (apparel/accessories/shoes/tech/media/home/art/other) og svo hvað hluturinn kostar. Soldið erfitt að útskýra en þetta skýrir sig allt sjálft þegar þið byrjið :)
Það er allskonar sniðugt dót þarna inni og ég get alveg gleymt mér í að skoða allt það flotta sem aðrir eru búnir að finna og pósta!
kv. Ýr
Sunday, November 6, 2011
Trégína Heiða Björg ITF 102
Teygjur
Efnisbútur
Notaði gallaefni eftir að búið var að stytta buxur hérna heima
Plastglas :) þetta er mikill Shrek aðdáandi..
Efnisbútur
Notaði gallaefni eftir að búið var að stytta buxur hérna heima
Plastglas :) þetta er mikill Shrek aðdáandi..
Subscribe to:
Posts (Atom)