Monday, February 13, 2012

Oscar de la Renta

Einn af mínum uppáhald fatahönnuðum er Oscar de la Renta. Hann byrjaði að verða þekktur um allan heim á sextugasta áratuginum. En hann er mest þekktur fyrir kjólanna sína á rauða dreglinum. Ástæðan fyrir því afhverju Oscar de la Renta er einn af mínum uppáhalds hönnuðum er vegna þess að ég elska hvað kjólarnir hans geta verið öðruvísi en samt verið fallegir og fágaðir. Hann hefur líka mjög oft kjólanna sína með stórum og vígalegum pilsum sem mætti halda að væri hans kennimerki. Hér eru nokkrar myndir og linkur af síðunni hans.


http://www.oscardelarenta.com/

Kynning á timabili

...



..


...


..

..

...

..
Ég valdi mér kjóla frá 1950, bæði gamla og svo sem er búið að endurvekja. Ég valdi þá til að fjalla um því mér finnst þeir svo ótrúlega flottir, þeir eru svo kvennlegir og minna mig rosalega mikið á sumarið alltaf. 

Kynning á tímabili

 Hér er dæmi hvernig 70's tískan hefur áhrif á nútímatískuna.
 Kim Kardashian með 70's inspired hár.
 Kim Kardashian í Snazzy pants.
 Snazzy Pants voru mjög vinsælar.

 Boho og hippastíll.


Ég valdi 70's tímabilið til að fjalla um. Ástæðan var vegna þess að mér fannst svo gaman hvað margir stílar blandast saman í eitt og hvað áhrifin á tískunni koma úr öllum áttum. Helstu áhrifavaldar voru Twiggy, hippa og boho stíll og einnig tónlistin á þeim tíma.

Hér er linkurinn að pinterest mínu
http://pinterest.com/eyrunlydia/70-s/


Sunday, February 12, 2012

Egon Schiele

Egon Schiele hefur alltaf verið einn af mínum uppáhalds listamönnum þó að hann að sjálfsögðu höfði ekki til allra. Hann var mjög afkastamikill miðað við að hann dó úr spænsku inflúensunni aðeins 28 ára gamall. Ótrúlegt að hugsa til þess að hans lærifaðir var Gustav Klimt, stíll þeirra er svo gríðarlega ólíkur. Læt fylgja með nokkrar myndir og link á góða síðu um Egon Schiele.







Síða um Egon Schiele

Thursday, February 9, 2012

Kynning á tímabili





Ég valdi mér Art Deco tímabilið til að fjalla um. Það hófst á 3.áratug síðustu aldar í París og því lauk þegar seinni heimsstyrjöldin skall á. Helsti tískuteiknari tímans var eflaust Erté, helstu hönnuðir voru Paul Poiret, Elsa Schiapparelli og Vionnet. Læt fylgja með nokkrar myndir frá þessu tímabili.

Erté

útfrá kynningu minni á Art Deco tímabilinu þá datt mér í hug að setja hér inn nokkrar af forsíðum tímaritsins Harper's Bazaar sem Erté teiknaði.








Nýasta skó tíska í mexico

Sunday, January 15, 2012

Omar Ortiz

Þetta eru allt málverk eftir suður-ameríska lista mannin Omar Ortiz ekkert af þessu er ljósmynd. Það er ótrúlegt það sem þessi maður getur gert!

-Sunna Rós

Friday, December 9, 2011

Hugleiðingar um ITF102



Mér fannst þessi áfangi mjög skemmtilegur, gaman að fá að læra teikna loksins en
eg lærði helling á þessum áfanga, og þetta á eftir að nýtast mer vel. Mér fannst skemmtilegast að læra að 
teikna stiliseruðu gínuna, og leika mer að breyta henni svona,  og þegar eg lærði að teikna  andlitið og lærði að skyggja 
eftir því. Ég lærði mest á þvi að  þegar kennarinn gekk á milli og sýndi okkur  og leyfði okkur að sjá hjá hverjum og einum.

Áslaug Reimars.

Hugleiðingar um ITF102



Hugleiðingar um ITF102

Mér fannst ég læra mikið í þessum áfanga og voru verkefnin áhugaverð. Ég verð þó að segja að mér fannst of mikið af verkefnum í áfanganum, bæði miðað við hvað við misstum mikið úr en einnig vegna þess að vorum bara einu sinni í viku. Ég hefði viljað fleiri tíma og fara aðeins hægar í efnið. Ég hef ekkert teiknað áður og mér fannst ég þurfa meiri tíma til að tileinka mér þá færni sem ætlast er til af manni í áfanganum. En mér finnst voða gaman að teikna og ætla að halda því áfram. 

Takk fyrir önnina :)
Kveðja 
Rannveig Alda Haraldsdóttir 

Thursday, December 8, 2011

Hugleiðingar um ITF 102

Mér fannst ITF 102 vera góður áfangi en ég vildi að við hefðum haft meiri tíma saman. Til að byrja með fannst mér skrýtið að hlusta á fyrirlestra um það hvernig á að teikna en fyrirlestrarnir voru góðir og kynntu allskyns tækni sem við gátum svo prófað okkur áfram með. Mér fannst best þegar tímarnir voru blanda af báðu, þe. fyrirlestur til að byrja með og svo tími til að teikna.
Það var virkilega gott að fá komment frá kennara en stundum hefðu helst þurft að vera tveir til að hjálpa okkur, við sem sátum aftast urðum stundum útundan!

Ég, eins og margir aðrir, var sett í 102 og 202 saman (og AHS313) þannig að það var mikið um teikningu þessa önnina! Það var svolítið skrýtið að vera taka þessa áfanga saman þar sem mér vantaði í rauninni grunninn fyrir 202....þetta bjargaðist auðvitað en eftir á að hyggja finnst mér að ég hefði geta gert margt betur í 202, eitthvað sem við vorum að byggja upp í 102 tímunum.

Uppáhaldsverkefnið mitt var trégínuverkefnið, mér fannst ég læra helling af því og það var gaman að klæða gínuna upp heima og pæla svo í hvernig væri hægt að gera alvöru flíkur úr því í lokaverkefninu.

Takk fyrir önnina :)

Ýr Kára

Wednesday, December 7, 2011

Hugleiðingar um ITF 102

Mér fannst áfanginn mjög skemmtilegur og verkefnin mjög áhugaverð, en skemmtilegasta verkefnið var trégínuverkefnið. Ég lærði alveg heilan helling á önninni og komin með grunn í líkamsteikningu og stíliseringu á gínum.
Ég er alveg sammála hinum að það hefðu mátt vera oftar skil á verkefnum yfir önnina.

Takk æðislega fyrir önnina þú ert frábær kennari :)


Auður Ýr Gísladóttir

Hugleiðingar um ITF 102

Mér fannst ég læra mjög mikið í áfanganum og hafði sérstaklega gaman af að læra að nota pappírsvöndul. Það var einnig mjög gott að læra að stílisera gínur og sjá hvernig raunverulegu módeli er breytt í tískuteikningu.  Mér fannst ég læra mest þegar kennarinn gekk á milli og hjálpaði hverjum og einum en það hefðu örugglega þurft að vera tveir kennarar eða helmingi færri nemendur til þess að það hefði verið hægt eins oft og maður vildi.
Mér fanst áfanginn hvetjandi og hann vakti löngun hjá mér til að læra meira.
kv. Þórunn Jens

H2011



Mér fannst áfanginn mjög fínn, lærði margt og kom sjálfri mér á óvart.

Hins vegar er ég mjög sammála þeim hér fyrir neðan. Verkefnaskil hefðu mátt vera reglulega og frekari komment á það sem við vorum að gera í tímum, en það var oft sem einhverjir fengu engann tíma með kennara, þá kannski sérstaklega þeir sem sátu aftast. Þá var einnig vont að missa mikið úr vegna veikinda.

Heilt á litið er ég þó ánægð með það sem ég lærði, og það mun eflasut nýtast vel í framtíðinni.

Takk fyrir önnina :)

 Sandra Heiðars.

Hugleiðingar í Itf


Mér Fannst ég læra helling yfir önnina í áfanganum t.d. um andlitin og stíliseringu líkama og fl. Leiðinlegt að missa út tíma þarna í byrjun :)

En ég verð að vera sammála þeim fyrir neðan með að það mætti vera reglulegri skil yfir önnina, þá gætum við líka tekið þau komment sem þú skrifar á myndirnar okkar og lært af þeim og ekki gert sömu mistöl á næstu mynd.. það myndi líka minnka vinnuna fyrir okkur og Hrönn í lok annar. Mér fannst ég líka stundum ekkert vita hvað ég átti að gera í tímanum :)

Takk fyrir önnina :)
-Heiða Björg

Hugleiðingar um ITF


Mér fannst verkefnin í áfanganum að öllu jöfnu góð og komin með þá allavega smá grunn í líkamsteikningu og stíleseringu á fötum, en mér fannst trégínuverkefnið skemmtilegast.
Ég held að ég hafi lært alveg helling á önninni sem á vonandi eftir að nýtast mér, þótt að við misstum doldið mikið af önninni útaf veikindunum.

En annars finnst mér  að það megi hafa reglulegri skil yfir önnina og sýna meira á töflunni í tímum hvernig við getum byrjað eða hvað væri góð aðferð að nota.

Takk fyrir önnina,
Sunna Líf.

Hugleiðingar um ITF

Mér fannst ég læra alveg slatta á þessum áfanga.
Margar teikniaðferðir sem ég hafði ekki hugmynd um. Var samt leiðinlegt hversu mikið við misstum úr vegna veikinda.

Áfanginn hefði geta verið settur betur upp. Skil á verkefnum nokkrum sinnum yfir önnina hefði verið mjög þægilegt.
Annars var þetta bara fínt yfir heildina.

-Brynjar

um áfangann

Mér fannst verkefnin í áfanganum að öllu jöfnu góð, en mér fannst trégínuverkefnið lang skemmtilegust!
Ég held að ég hafi lært helling á önninni sem á vonandi eftir að nýtast mér.

En mér fannst uppsetningin á áfanganum ekki nógu góð, hann minnti mig eiginlega á fjarnámsáfanga, þar sem maður þarf að vinna mjög sjálfstætt og skilar öllu í lok annar og gerir þar að leiðandi ekki verkefnin jafnt og þétt, mér finnst að það meigi endurskoða það og hafa reglulegri skil yfir önnina.

Takk fyrir önnina,
Ester Sig.